Ég er búin að vera að senda inn myndir af flúrunum mínum og ein er á leiðinni að verða samþykkt…

Mig langaði bara að benda fólki á að ekki copya þessar myndir og fá ykkur eins tattoo, þeas. ef ykkur finnst þau þess virði.. Mig langar ekki að mæta manneskju úti á götu með eins flúr og ég..
Er ekki að reyna að vera leiðinleg, mér þykir bara vænt um flúrin mín, þau hafa öll mikla þýðingu fyrir mig.
Ég tel þó ekki líklegt að einhver muni gera þetta en það er betra að segja þetta áður en það gæti verið gert! ;)

Og ég veit ég get sleppt því að senda inn myndir en mér finnst flúrin mín flott og vil endilega deila þeim með öðrum, bara vil ekki að neinn fái sér eins :þ

Og ég veit að sumir eru á sama máli…

Takk…