Ég var svona að pæla, er eitthvað meiri sýkingarhætta á mismunandi stöðum?? Og eru einhverjir staðir á líkamanum sem er hættulegt eða jafnvel bannað að skreita sig á? Bara pæla.

Er svona að pæla að fá mér eitt lítið svona aftaná hálsinn ofarlega, eða í hnakkann… svo ég var svona að pæla hvort einhver hérna viti eitthvað um svoleiðis mál :)

OG fyrst ég er byrjuð, hvernig er með mjög lítil tattoo, hversu lítil geta þau verið þannig að þau séu líka nákvæm, vil ekki hafa einhverja klessu þar sem á að vera einhver fínleg mynd… bara pæling…