Þannig er mál með vexti að ég hanna föt eins og óð væri á blöð. Þ.e.a.s. ég teikna manneskjur í fötum og er, þótt ég segi sjálf frá, mjög hugmyndarík hvað það varðar. Það er síðan ekki til arða af þolinmæði í heilanum á mér, þannig að ég gæti ekki saumað heila flík fyrir lífið.

Ég var allavega að hanna jakka og peysu rétt í þessu, og mig vantar einhvern hæfileikaríkan til að fara í verkið fyrir mig, semsagt að taka upp snið samkvæmt teikningunni minni og síðan sauma flíkina.

Ég var að spá hvort þið vissuð ca. hvað það kostaði almennt hjá klæðskerum og kjólasaumameisturum etc. að búa til snið frá grunni og sauma flík? Ef við tökum jakka sem dæmi?

Og ef svo skemmtilega vildi til að þið vissuð líka um góða manneskju í verkið, þá væri frábært ef þið bentuð mér á viðkomandi.

Fyrirfram þakkir ;)
Kallisto
'The entire Fleet knows that this man tried to stab me through the neck. And you missed! Butterfingers!'