Það vill svo til að á laugardaginn síðastliðinn fékk ég mér dredda í hárið (með backcombing aðferðinni) og þeir tókust ágætlega fyrir utan nokkra sem ég þarf greinilega að laga allsvakalega til. (þessir mjóustu og síðustu sem ná niður á axlir)

En vandamálið sem ég á við að stríða er að finna sjampó sem ég get notað. En ég þarf semsagt Residue free sjampó. Sjampó sem skilur ekki eftir sig einhvern helvítis fjanda í hárinu eins og lyktarefni eða eitthvað álíka því það getur drepið dreddana, látið þá mygla og álíka.

Veit einhver hvar ég get keypt Residue free sjampó hér á landi?

önnur spurning, er hægt að kaupa Tam húfur (dredda húfur, stórar og með “hólfi” aftan á) hér á landi?
Jóhannes Gunnar Þorsteinsson