Ég er á leiðinni til útlanda í nokkra mánuði og mig langar til að taka með mér þangað eina góða, flotta íslenska lopapeysu. Mig langar í svona aðsniðna með kvensniði eins og hefur verið í tísku undanfarið, helst renda og með hettu.
Veit einhver hvar er best að finna svona peysu? Ég var að hugsa um að kíkja á Álafoss, og svo dettur mér í hug Seglagerðin og þessar túristabúðir. Einhver sem hefur góða reynslu af lopapeysukaupum og veit hvar flottustu peysurnar fást?