Jæja.. ég hef eina spurningu fyrir ykkur elskurnar,
ég hef litað hárið á mér margoft, er upprunalega brúnhærð, en seinustu 3 árin hef ég verið allir mögulegir tónar af rauðu og 1 sinni með svart hár. Ég er með alveg eldrautt hár núna http://img.vampirefreaks.com/upic/d/di/dik/dikta/6384699.jpg<- mynd af núverandi litnum… hann var litaður á stofu.
Jæja, þá er það spurningin:
Ég er komin með ógeð á því að vera rauðhærð og langaði að breyta algjörlega til. Get ég aflitað á mér hárið (á stofu) eða mun ég enda með neon-appelsínugult hár, or sum? o_0