hæhæ, ég er rauðhærð og er oft búin að pæla í því að lita hárið og svona, er að spá í strípum…

hvort finnst ykkur:
ljósar strípur
dökkar strípur
ljósar og dökkrauðar strípur
dökkar og dökkrauðar strípur

eða eitthvað annað??

Svo var ég að spá.. ég er svona frekar hvít, finnst ykkur að ég eigi að fara í brúnkumeðferð eða eitthvað? (get ekki orðið brún og vil ekki taka áhættuna á að fara aftur og aftur þar sem að ég er mjög hrædd við að fá húðkrabbamein, er með svo viðkvæma húð) Eða væri það kannski too much? Þar sem það er einkennandi fyrir rauðhært fólk að vera hvítt, fer það þeim ekki bara betur? eða hvað finnst ykkur?

og ef ég geri það, er ekki hægt að velja hve dökkur maður vill vera? Því að ég mundi vilja bara ótrúlega ljóst svo það yrði ekki gervilegt.. :)

Með fyrirfram þökkum:)