Mér hefur fundist svo lítið úrval af flottum skóm hér á klakanum undanfarið, ég er ekki hrifin af þessum támjóu fyrirbærum, ég er lítil og það er asnalegt þegar skórnir eru lengri en maður sjálfur svo það kemur ekki til greina.
Það er líka allt of lítið úrval af skóm sem eru bara úr leðri.
Það er ekkert betra en ekta leðurskór, þeir endast svo vel og það er svo gott að vera í þeim og þeir lykta miklu betur en svona nælonskór.
Ég er alveg tilbúin að borga meira fyrir skó sem endast og eru flottir.
Svo hef ég verið að leita mér af sandölum en ekki fundið neina sem mér finnst flottir, kannski hef ég bara svona erfiðan smekk…<br><br>Talbína
Talbína