Er að fara í klippingu. Það væri nú ekki frásögu færandi nema að fyrir það borga ég nærri 15. þúsund kall. Já ég veit að það er klikkun. En ég bara treysti fæstum fyrir hárinu á mér og ef að ég vil vera ánægð þá þarf ég bara að gjöra svo vel að punga út þessum peningum…

En annars er ég að leita mér að bestu stofunni í bænum. Flestir segja Tony&Guy en vil heyra fleiri álit! Hvar fær maður annars staðar svona góða þjónustu og klippingu?

Hvað eru þið að borga fyrir klippingu og strípur í sítt hár? Kv.
ævintýrin gerast þegar þú vilt að þau gerist…