Ég fór í klippingu og vildi prófa e-a nýtt og tók pínu áhættu og núna þoli ég það ekki! Ég er alveg að verða brjáluð! Þannig ég var að spá er eitthvað sem fær hár til þess að vaxa hraðar, þá er ég ekki að meina að maður sofni og vakni svo með hár niðrá rass. Bara eitthvað sem fær hárið til að vaxa aðeins hraðar því mitt hár vex svo hægt og ég er virkilega fúl útaf þessari klippingu!