Daginn.

Var að skoða síðuna hjá Abercrombie og langar að kaupa tjah.. helling þaðan, en svo er ekki hægt að láta senda fötin til Íslands. Eða allavega ekki mér vitanlega - nema bara gegnum shopusa, en þau smyrja dáldið á verðið. Dáldið mikið. Ég checkaði á ebay og var að reyna að finna sömu föt og voru á Abercrombie síðunni but no luck. Hefur einhver hérna pantað föt af þessari síðu án þess að nota shopusa, og ef svo er, hvernig barstu þig að? :)
- Siggi