Sæl veriði, var ekki alveg viss hvort ég ætti að setja þetta hér eða á skólaáhugamálið, en ákvað að skella þessu hér.
Ég var að velta því fyrir mér hvurslags nám það væri sem maður þyrfti að fara í gegnum til að fá réttindi sem klyppari, hvar hægt er að fara í það og hvað það tekur langan tíma? Þætti gaman að heyra frá einhverjum sem farið hefur í svona nám :)