Ég fékk mér gat í nabblann og það var ekkert vont,eða mér fannst það ekki,þannig að vinkona mín ákvað að fá sér líka. Hún er soldið viðkvæm fyrir nálum og sársauka og svoleiðis. Henni fannst þetta heldur ekkert vont og við vorum komin út og allt í fína þegar allt í einu var hún alveg náföl og svo leið yfir hana. Þegar hún vaknaði eftir svona fimm mínútur þá fórum við inn aftur og hún fékk vatnsglas og stóð við viftuna og svo byrjaði að blæða og svo leið aftur yfir hana….þetta var ekki af því að henni þotti þetta svona vont heldur var þetta bara spennufall hjá henni. Þetta varð okey þegar við vorum komnar út aftur og þá fórum við bara heim. Þetta hefur sko komið fyrir áður,eftir sprautur í skólanum og solleis. Henni lípur vel núna eftir klukkutíma.:)
ég vil líka segja að þetta var ekkert vont en samt var ég svo kvíðin að það var ekki fybdið. Ég vil endilega hvetja alla sem að vilja fá en þora ekki að fara að fá sér vegna þess að þetta er ekki vont. Smá stingur og svo sviði…en auðvitað fer það eftir hverjum og einum. Ég mæli líka með Stofunni í Fareham ef að þið farið til Englands. Þar fórum við vinkona mín og það er allt voða hreint og konan er mjðg góð í þessu.

Þetta var skrifað með leyfi vinkonu minnar!! Vildi bara deila þessu með ykkur. :)