Þetta er kannski ekki neitt vit í þessu en ég hef verið að velta því fyrir mér hvort að það virki eitthvað á konur sem sexý þegar að menn eru í virkilega þröngum buxum og gallabuxum. Þá á ég við buxur sem að kannski eru þröngar um rass, læri en beinar niður. Eins og gefur að skilja er ég fyrst og fremst að vonast eftir að fá viðbrögð frá kvenþjóðinni.
Ég hef oft tekið eftir því hvernig konur leika þann leik að mæta í níðþröngum buxum og karlmenn fíla það. Þeir horfa og taka vel eftir þegar vel vaxnar gellur mæta á svæðið í kannski svona niðþröngum Levi's að allt er sýnilegt. Ég hef hins vegar líka séð það hvernig huggulegir menn geta æst konur þegar að þeir eru komnir í passlega þröngar buxur, konur nota augun meira til að daðra en karlar og því spyr ég: Vilja konur hafa menn í þröngum buxum? Eða hvað með þessa þrálátu tuggu um að það sé hommalegt? Hef reyndar aldrei skilið það því að margir hommar klæða sig einmit flott og konur eru sumar mjög hrifnar af klæðaburði homma finnst mér.
Látið heyra í ykkur og komið með skot um þetta, ég veit að þetta er kannski ekki rétt skilið hjá mér en ég hef á tilfinnigunni að þetta sé eitthvað sem sé þess virði að ræða um.

Gleðileg jól og áramót, September.