Ég veit ekki hvað það kostar hjá Tony&guy en ég veit að lita allt hárið kostar um 4000 kr. og þá er klipping ekki innifalin.
Réttast væri að skreppa bara út í búð og kaupa sér lit (ekki Viva, helst Loréal) og láta einhvern hjálpa þér að setja þetta í. Það er mjög einfalt. Ef þú ert með mjög sítt og þykkt hár er réttast að kaupa tvo pakka en ef þú ert með meðalsítt hár og meðalþunnt eins og ég, þá þarftu bara einn.
Btw. gott er að nota ösku eða vaselín í að fjarlæga lit sem kemur á húðina.
Gangi þér vel og sendu mér skilaboð ef það er eitthvað sem þú þarft að vita í sambandi við að lita heima, ef þú notar þann valmöguleika :)