Ég skoðaði könnunina sem er í gangi núna, þar sem talað er um hvort það er flott þegar strákar eru málaðir. Rúmlega helming fannst það ógeðslegt enda kannski ekki eðlilegt að sjá stráka málaða.

Mitt persónulega álit er að mér finnst algjör snilld þegar strákar mála sig. Það þýðir að þeir eru uppreisnargjarnir og ekki hræddir við þetta “kvenlega fyrirbæri.” (Eða eru bara wannabe rokkstjörnur?)

Þetta var mikið gert í gamla gamla daga og óska ég þess að þetta verði tekið upp aftur, að konur séu ekki þær einu sem mála sig!

Strákar, verið óhræddir við að prófa nýja hluti. Það er ekkert kvenlegt við að mála sig, það er bara flott.