Nú er ég orðinn hundleiður á því þegar fólk er að alltaf með þetta crap útí hvort annað. Það er einum of mikið af greinum þarsem fólk er að rífast, “gotharar eru satanistar, rokkarar eru ljót bólugrafin frík með sítt hár, rapparar og hnakkar eiga að deyja þeir sem hlusta á techno eru fífl. Líka of mikið af þessu rugli á dc þarsem fólk segist líka hata asíubúa og segir að hnakkar eigi skilið eitthvað verra en að deyja o.fl.. Það er örugglega það heimskulegasta sem ég veit um þegar fólk hatar hvort annað útaf því að önnur manneskjan fílar techno eða rapp eða eitthvað svoleiðis. Ég sá um daginn að einhver á dc spurði eitthvað um Prodigy tónleikana og þá fékk hann það strax í sig að hann væri fífl, hnakki og eitthvað svoleiðis. Þá kem ég að einu, þegar fólk er kallað hnakkar. Og ekki fyrir löngu sá ég einhvern kork eða eitthvað um einhvern gaur sem tattúeraði fm merkið á sig og fólk var að tala um að ætti að drepa hann og eitthvað…??????…..ég held þið skiljið hvað ég er að fara. Ég held að enginn sé alveg laus við fordóma, (varla ég heldur býst ég við) en mér finnst að það ætti minna að bera á því…heimskulegt að segja að þessi sé betri en þessi að því að hann er rokkari en hinn hnakki. Mér finnst líka heimskulegt að kalla fólk pósera. “Þessi gaur fílar ekki metallica þetta er fucking pósari, þetta er hnakki” og eitthvað

Þið skiljið hvað ég er að fara right? Fólk er ekkert verra þó það fíli rapp, techno, rokk, metal, spili cs og fram eftir götunum. Það er asnalegt þegar fólk er alltaf að flokka hvert annað í flokka, hnakki, rappari, rokkari o.s.frv. Er alls ekkert verra en þú sjálfur.
They may take our lives but they'll never take our freedom!