Ég veit ekki alveg hvort ég á að setja þetta hérna inn á en ég læt þetta bara gossa.
Málið er nefnilega að ég er mjög hrædd um vinkonu mína hún er 15 ára gömul og er 177 cm og 45kg. Þegar hún var yngri var hún svolítið búttuð, hún var alls ekkert feit heldur bara svona krútt. Þegar hún fór að eldast fór hún að léttast mikið og sérstaklega frá því í 7. bekk. Foreldrar hennar eru oft að heiman vegna vinnu og hún á 2 eldri bræður sem borða mikið og því á hún mjög auðvelt með að sleppa því að borða, því að hún þarf bókstaflega að hugsa um bræður sína.
Það sem ég held er að hún vilji vera svona mjó því að það hefur verið hennar sérkenni í svona 2-3 ár, það taka margir eftir henni því að hún er svo mjó og margir halda að hún sé með anorexiu. Ég held hún eigi eftir að drepa sig einn daginn.
Getur einhver sagt mér hvað ég get gert?