Ég er með gleraugu og ég er sko alls ekki sátt við það! ekki út af því að mér finnist það einstaklega ljótt heldur finnst mér það bara svo ósanngjarnt, sumir þurfa að standa í þessu en sumir ekki!

En er það ennþá talið nördalegt að vera með gleraugu? ég meina, lýsingin á týpískum nörda: með buxurnar gyrtar upp að geirvörtum, útskeifur, með ljótt hár og gleraugu.
Eða eitthvað svona, allavega er alltaf nefnt að viðkomandi gangi með gleraugu…

Þannig að ég spyr ykkur, horfið þið öðruvísi á fólk með gleraugu? mynduð þið t.d. ekki vilja vera í sambandi með eitthverjum/eitthverri sem er með gleraugu? skiptir það máli?

Kveðja, Mez
Datt ekkert smellið í hug..