Hæhæ,
systir mín er 13 ára með þetta ÞYKKA hrikalega þykka hár, það er bara ótrúlega þykkt það er hræðilegt, og til að gera verra verst þá er það mjög krullað líka! þegar hún vaknar þá stendur þetta útí loftið eins og ég veit ekki hvað.. ég er ekkert smá fegin að hafa fengið þetta slétta beina hár=)
En allavega, hún er með hár niður á bak og ég veit eiginlega ekki hvað hún getur gert við það, ef hún klippir það axlarsítt haldiði að það yrði bara útí loftið alltaf útaf krullunum? Er einhver með sama vandamál hérna?
Hvernig myndi það vera ef hún myndi setja í það styttur og láta þynna hárið og svona, yrði það ekki alveg súper?

Kveðja,
Vala<br><br><font color=“#FF00FF”><b>Ég er bleiki pardusinn</b></font