HallóHalló
Já ég veit ekki hvort þessi grein á heima hér (þar sem þetta er nú ekki beint grein) en mig vantar smá leiðbeiningar um það hvernig á að krulla hár… ??

Þar sem ég er með sléttasta hár í “heimi” langar mig í smá tilbreytingu en veit ekki hver er besta leiðin. Mig langar að prufa mig áfram, en þori samt ekki í permanett alveg strax. Ég á semsagt svona hita-krullu-járn (með tveimur svona spítum uppí loftið og klemmir svo saman) en ég kann ekkert að nota það :S

Ef einhver hefur reynslu af þessu og kann á svona járn og kannski leiðbeina mér um hvernig efni er Best að nota væru öll góð ráð vel þegin :)

takk fyrir mig ;)