Gleðilegt nýtt ár allir hugar og landsmenn ég vil deyla með ykkur hugsunum mínum um hvernig föt og tískan getur farið með fólk!

Flestir þeir sem horfa á það sem er að gerast í “poppveröldini og tískuni og öllu því” hafa eflaust tekið eftir því að þar eru allir mjóir, fallegir, sexy, í flottum fötum og svo framveigis.
Og þið vinsælu krakkarnir sem lesa þetta hafa kannksi aldrey hugsað útí það að þetta gæti verið niðurdrepandi fyrir þá sem eru ekki frábærir eins og þið og þessar stjörnur…Allavegana finnst mér þetta niðurdrepandi ég myndi örugglega gera allt til þess að komast inn í vinsælan hóp og verða falleg…Ég ætti kannski ekki að seygja þetta hérna enn mér hefur dottið í hug að ég sé einskis virði af því að ég er ekki falleg eins og þau.Enn núna bara nýlega hef ég komist að því að þau eru ekki svona fullkominn eins og þau virðast vera sum þeirra keppast um að vera fallegri og meira sexy enn aðrir. Það eina sem lífið snýst um hjá þeim að virðast vera meira cool enn allir aðrir.Og hvernig sýna þau það?Með því að eyða meira og meira af peningum í ný rándýr föt og slefa ofan í alla vinsælu strákana!!!!!Ekki væri ég til í að lifa þannig lífi hvað með ykkur?