Já góðan daginn, langar bara að veita ykkur innsýn inní ógeðslegt líf mitt.

Hæ, ég er 15 ára, er í 10. bekk, er bara nokkuð venjuleg í vesti, myndi nú frekar segja að ég væri grönn heldur en feit, og nú er svo komið að mig vantar svo mikið föt að ég væri til í að selja sálu mina fyrir þau.
Nú, þegar ég fer útí búð, þá máta ég hverja einustu gerð og hverja einustu stærð af buxum, og ALLT, og þá meina ég ALLT! sem fyrir jesúsar náð virðist passa á mig er ljótt. Hvað þarf VENJULEG STELPA AÐ GERA TIL ÞESS AÐ FÁ Á SIG ANDSKOTANS FÖT!! þurfa allir að vera 35 kíló til þess að passa í buxur hér í þessum heimi???

ég er frekar mikið í´íþróttum, og hef þess vegna alltaf verið soldið mössuð, hef alltaf verið bara frekar stolt af því, en nú er svo komið að ég fæ ekki RASSGAT utan á mig!!!!!!!!!!!! vill einhver vinsamlegast gefa mér hnitmiðaða útskýringu á því af hverju tískuframleiðendur eru með höfuð sitt inní rassgatinu á sér?????????? og er einhver hér sem á þetta sameiginlegt með mér??
afsakið reiðina, ég er í mjög miklu uppnámi núna, og hef fullan rétt til þess að vera reið.