Jæja, nú skal röflað!

Hvernig getur fólk fylgt nýjustu tísku alveg uppá hár?
Ég meina, það er bara dýrt og mér finnst að fólk sem gerir það sé mjög ósjálfstætt. Það er allt í lagi að vera örlítið í tísku, reyna að falla inní hópinn en öllu má nú ofgera.. Þetta er líka svo gasalega dýrt, hvernig hefur fólk efni á þessu? Sumir fyrirlíta mann fyrir það að kaupa ódýra flík sem fæst í Hagkaup á 1000 kall.. Kommon!
Mér finnst nú bara soldið kúl að vera ööörlítið útúr, hafa sína eigin tísku.. Sýna smá hugmyndaflug! ;)
(ekki rakka mig niður)