ég hef mikið verið að pæla í tískunni í dag. það er eins og við höfum farið 20-30 ár aftur í tíman persónulega finnst mér þessi tíska mjög ljót og sumir eru alveg hræðilegir/hræðilegar til fara. svo er það skó tískan, ég get ekki farið að kaupa mér spari skó því að það eru allir skór orðnir beinlínis ljótir og allir alveg eins annað hvort flatbotna eða með svo miklum pinna hælum að mig verkjar að horfa á þá. Svo eru sumir þeirra orðnir svo fáránlegir á litin. Það getur vel verið að mörgum finnist þetta flott en ég myndi aldrei ganga í bláum buxum og svo rauðu síðu pilsi yfir og svo grænum bol til að toppa það þetta finnst mér bara ekki flott. ég vona innilega að ég hafi ekki móðgað einhvern sem fílar þessi föt eða þessa skó. ef svo er þá biðst ég afsökunar.