Ég er bara venjuleg 16 ára stelpa sem er að vandræðast aðeins héna og vantar endilega hjálp.. Þannig er mál með vexti að ég er að grennast alveg ótrúlega mikið núna þannig að öll fötin mín eru orðin stór. Ég ætla að í verslunarleiðangur á laugardag og kaupa mér fullt af nýju. Málið er bara að ég hef aldrei verið eitthvað voða að fylgjast með tískunni. Ég er alltaf í íþróttum og hef einhvern veginn þá orðið þessi íþróttatýpa. Því vantar mig ykkar hjálp stelpur, með hverju mæliði? Hvernig fötum? Hvaða búðum?

Ég er mjög grönn og hávaxin..