Ég var að labba niður laugarveginn í dag, það var gott veður og þá nátturlega fólk í pilsum og stuttbuxum. En ég hneyklaðist algjörlega þegar ég sá stelpu sem var svona 9 ára gömul klædda í pils sem náði rétt fyrir neðan rass og í eitthverjum pínu topp.

Þegar leiðin lá niður Laugarveginn fór maður að sjá miklu meira og meira af þessu. Stelpur klæddar eins og ég veit ekki hvað.
Það er allt í lagi að svona 15 ára stelpur klæði sig svona en ekki 9 ára!!

Ef maður fer kannski inn í Hagkaup eða svona high-Fashion búðir sér maður bara föt á stelpur eins og stutt pils og stutta boli.

Hver lætur krakkana sína klæðast svona??

Mér finnst þetta einum of.

Ég leit líka inn í búð (man ekki hvað hún heitir hún er ofarlega á Laugarveginum) og sá þar bol með eitthverri áletrun, ég fór nær og kíkti á bolinn. Á honum stóð I´m sexy. leit svo á miðann með stærðinni og þar stóð 8-10 ára!!.
Ég leit í kringum mig og sá fleiri svona boli fyrir 8-10 ára gamlar stelpur með áletrum eins og: I´m hot, Porn Star.

Takk fyrir mig

~Vinny~