Hver hefur ekki tekið eftir því að sama tískan kemur alltaf aftur nokkrum árum seinna?
Ég er t.d. að vinna á sólbaðsstofu sem er einnig verslun og á föstudaginn kom vorsendingin af fötum. Og viti menn, bolirnir og kjólarnir eru allir svona svart og hvít mynstraðir, alveg eins og fyrir 5-6 árum, muniði ekki eftir því?
Maður ætti helst bara að geyma öll fötin sín, þau koma hvort eð er aftur í tísku eftir nokkur ár :)