Það eru svo margir að kvarta yfir því nú tilæ dags hvað föt eru orðin dýr. Það er reyndar alveg til í þessu, föt eru nú svolítið dýr, ég get ekki neitað því en er fólk að kaupa réttu fötin?
Nú er ég náttúrulega algert merkjafrík og allt það en ég verð að segja það að diesel föt hafa alltaf gagnast mér best af öllum. Ég hef átt 3 diesel buxur, ég gat notað 1 þangað til ég óx upp úr þeim, 1 er ég búin að eiga og nota mikið í 2 ár, 1 er ég að verða búin að eiga í 1 ár. Ég er mjög ánægð með hönnunina,sniðin og allt á þessum fötum. Svo er eitt! Vinkona mín keypti sér gallabuxur á 10.000 krónur í Vokal í smáralind, þessar buxur eru algert drasl! Það er teygjuefni í þeim og þær eru strax ónýtar! Ég hef átt diesel buxurnar mínar miklu lengur en hún hefur átt sínar Vokal buxur og mínar eru úr betra efni, fallegri, sterkari en ég fékk þær líka á 10.000 krónur!