Hvaða háralitur finnst ykkur flottastur? Mér finnst persónulega alveg svart hár vera geðveikt flott =)
ég er sjálf með ljósrautt hár og finnst það EKKI flott.
Það eru allir alltaf að seigja þú ert víst með flott hár.
Mér finnst það ógeðslega pirrandi.
Mamma leifir mér ekki að lita á mér hárið þótt hún sé hárgreiðslukona.
Hún seigir að ég sé of ung. En ég er samt með mikið af strípum og ég hef fengið strípur síðan ég var 9 ára !
Ef ég mætti alveg ráða myndi ég lita hárið á mér alveg svart og setja geðveikt mikið að styttum. Meira en ég er með, og er ég með alveg ótrúlega miklar strípur.
Mér finnst Camron Diaz alltaf með flott hár líka Jennifer Lopez.
Mér finnst líka Avril Lavinge vera með flottan háralit.

en hvernig hár eru þið með?
Eða hvernig hár finnst ykkur flottast?