Ég er að reyna að finna mér gott belti(leður) og er ég búinn að skoða mörg síðustu daga. Vandamálið er að flest beltin sem ég hef séð hingað til er léleg að því leiti að þau eru hönnuð og saumuð eins og tvö mjög þunn belti(tvær leðurræmur) hafi verið saumuð saman, skoðið beltið frá hlið þá sjáið þið hvað ég meina, og endast þar af leiðandi ekki mjög lengi, kannski í mesta lagi eitt ár. Þannig að mér datt í hug að spyrja ykkur hér strákar, hvar kaupið þið ykkar belti og hvernig hafa þau reynst ykkur? <br><br>Kveðja
php