Ég var á laugarveginum og ákvað að kíkja inn í BRIM, eins og flestir vita þá eru mjög flottar úlpur og flest föt í BRIM, en alla vega þá sá ég geðveikar buxur sem voru með mjög flott snið þegar ég skoðaði þær bara svona á gínu svo að ég ákvað að máta þær en þegar ég var komin í þær þá leið mér fyrst eins og ég hafi verið sett í stuttbuxur af 3 ára krakka og sokkabuxur yfir númer xxxxxxxx-large svo að ég ákvað að kaupa þær ekki en þegar ég fór að skoða þær betur þá var verðið 8.900 krónur og þá varð ég hissa að svona ljótar buxur skildu kosta svona mikið.

svo þegar ég var í kringlunni stuttu seinna þá sá ég frekar feita stelpu í þessum buxum og þær komu gegt vel út á henni þannig að ´´eg fór að svekkja mig fyrir að hafa ekki keypt þær, en eins og allir sem hafa séð mig vita þá er ég bara ósköp venjuleg stelpa sem stunda íþróttir og er ekkert mjó og ekkert feit en samt ekki þybbin!!

En þegar ég fór að spöglera þá fannst mér svoldið skrítið að gína gat verið svona flott í þessu sem er sjó eins og spýta og líka feit stelpa en samt ekki millivegurinn!!

Hafið þið lent í þessu??
-Það er ljótt fólk sem heldur fram að fegurðin komi innan frá