Ég er aðeins að pæla í skóm!

Stígvéli eru ógeðslega flott að mínu mati. Þú getur notað þau við pils, buxur og kjóla. Reyndar fýla ég ekki þegar stelpur eru í lágum stígvélum og svo í pilsi. En ykkur?
Svo eru náttúrlega stígvéli með mjóum oddi að framan mjög flott en ég gæti ekki verið í svoleiðis skóm. Pæliði í því að sparka í einhvern þegar maður er í svona támjoum skóm, það mundi ekki vera neitt sérstaklega gott fyrir manneskju að fá skóinn í sig!


Sko þeir skór sem ég tek mest eftir eru adidas skórnir, þeir eru með allskonar lituðum röndum og líka skórnir sjálfir. En eru það ekki allir sem eiga svona skó?
Allavega á ég svona skó. Þeir eru geðveikt flottir finnst mér en mér finnst allir vera í svoleiðis skóm!