Ég var að lenda í því veseni að þurfa að fá mér gleraugu.
Þau eru alls ekki sterk en þetta eru svona hvíldargleraugu því ég sit fyrir framan tölvu allan daginn og er farinn að fá svona nettann höfuðverk.En ég bjóst við því að verða eins og versti hálviti með þetta en þau koma bara ansi vel út á mér.Ég var nú bara að fá þau kl 14:00 í dag og er enn að reyna að venjast þeim.
Það er svolítið óþægilegt að hafa eitthvað á nefinu þar sem maður hefur aldrei þurft þess.
En ég mæli með því að fólk fái sér gleraugu þó það sé ekki með styrkleika þar sem það getur breytt manni á skrytinn hátt en samt á flottann hátt.Allavega breyttist ég við það að fá mér gleraugu.
Þau gera mig virðulegann og það kemur svona flottur stíll yfir mig.
KV