Halló, ég er 14 ára stelpa, og ég hef tekið eftir því að stelpurnar sem eru nokkrum árum yngri en ég eru sumar orðnar svo miklu meiri gelgjur heldur en nokkur stelpa hefði nokkurntíma orðið í mínum árgangi á þessum aldri. Ein greinin hérna á huga fjallaði t.d. um litlar stelpur í g-streng. Mér finnst 10 ára stelpa svolítið of ung fyrir g-streng og make-up. Ég hef alveg séð litlar stelpur í mínum skóla í 4. bekk sem farnar eru að ganga í g-streng og nota gloss.
Svona stelpur ættu að vera í jogging galla og með fléttur og í strigaskóm, og þeim ætti að vera alveg sama hvort það skvettist á þær drulla eður ei. Þær ættu að kunna barbie og dúkku leiki og strákar og stelpur ættu ekki að vera að pæla þannig í hvoru öðru, en ég veit um fullt af tilfellum þar sem krakkar alveg niðrí 4. bekk hafa verið að byrja saman og þess háttar.
Og mér finnst að það sem gera mætti í þessu væri einfaldlega að kenna litlu stelpunum að vera litlar! kenna þeim að leika sér og taka burtu þessar fullkomnu fyrirsætur sem virðast ætla að setjast að í þeirra huga eins og eldri stelpna. Því stelpur sem byrja gelgjuna í 4. bekk eru ekki heilbrigðar. Það er einfaldlega búið að heilaþvo þær af Popp Tíví gellum sem eru fixaðar til í tölvum áður en myndböndin þeirra eru sett í loftið. Það þarf einfaldlega að segja þessum litlu stelpum að þetta sé ekki flott, að þetta sé bara hallærislegt!!