Ég skil ekki alveg sko þegar ég fer í búðir að leita mér að buxum þá fer ég til að kaupa mér föt sem passa á mig.
Oft þegar ég fer í búðir eru bara buxur fyrir stór læri eða allavega sterri læri en ég er með og það er sko hræðilegt einhverjir pokar hjá lærunum og svo flottar niður. Hver vill þannig buxur???
En samt ég er alltaf að reyna að fita mig eitthvað en það gengur doldið hræðilega illa því ég fitna ekkert. En meðan ég er að berjast um það að finna buxur sem passa á mig eru aðrir að reyna að finna buxur sem eru of þröngar yfir lærin.
En hefur einhver annar lennt í þessu og ef einhver segir að ég eigi að þrengja þær þá hefur maður ekki tíma ef maður ætlar að fara í þær um kvöldið eða eitthvað.
Þetta er kannski ekki beint grein en er einhver hérna sem er með of stór læri eða of lítil???
Endilega svara.