Hérna fyrir næstum tveimur árum síðan skrifaði ég hérna grein um Spútnik og kallaði hana bestu búðina í bænum. Nú er ég auðvitað búinn að skipta um skoðun. L12, nýja Rauðakrossbúðin við Laugaveg er auðvitað besta búðin. Þar fæst þverskurður af fötunum í Spúútnik, en á mörghundruðprósent lægra verði. Ég fagna þessu, sérstaklega þar sem ég er sífátækur MH-ingur sem á varla nokkru sinni bót fyrir boruna á mér. Búðin passar því fatastíl sem veski; ég á eftir að verða fastagestur þarna og hver veit nema ég bjóðist til að vinna þarna í sjálfboðavinnu öðru hvoru, bæði til að styrkja gott málefni og til að stuðla að áframhaldandi opnun búðarinnar sem er nú á besta stað í borginni. Kíkið og kaupið föt á fáranlega lágu verði þarna í L12! (minnir að hún heiti það…)
——————————