Hvernig skyldi það verða, munum við öll ganga í Burberrys buxum með Burberrys hatt og spila golf?
Það er alveg ótrúlegt að þegar ein fræg manneskja myndast einhvers staðar í einhverju sem henni finnst vera flott það er 1/4 af íslensku þjóðinni kominn í eitthvað svipað mánuði seinna, eitt sinn sá ég Victoriu Beckham sitja í blaðaviðtali og var hún í svona tígla bikiní topp sem var úr svona Burberrys munstri og ég fer að hugsa hvort þetta skyldi þá koma aftur í tísku en þetta var eitt vinsælasta munstrið fyrir rúmum 20 árum og viti menn þegar ég rölti svo niður Laugaveginn um mánuði eða tveim eftir að ég sá þessa mynd voru margar verslanir komnar með alls konar flíkur í þessu munstri og að sjálfsögðu þurfti ég að mæta Friðrik Weisshapel og hmmmmmmmm hann var einmitt með Burberrys trefil.
Ef að mér hefði til dæmis dottið í hug fyrir 3 árum að fara inn í skáp hjá mömmu og fá lánaðan þennan trefil og kannski golfhúfuna hans pabba þá hefði ég nú verið HALLÓ.

Jæja nóg að röfli