Mig langaði svona til þess að forvitnast um hvert ykkar álit er á fötunum sem við göngum í nú í dag!
Flauel er eitthvað voðalega vinsælt þessa dagana…það eru til flauelsdragtir fyrir konur og flauelsjakkaföt fyrir karlmenn. Svo eru líka allskonar flauelskápur í gangi…og ekkert smá dýrar!! Vinkona mín keypti sér svona kápu um daginn hún var voða “plain” en hún kostaði hvorki meira né minna en 20 þúsund kall!!!
Og þetta nýjasta sem mér finnst ekkert smá töff….skyrta og bindi fyrir kvenmenn!
Svo er að koma aftur að vera í svona kápum með loðkraga…sú tíska hefur þvælst inn og út í gegnum árin! Mig langar einnig að spurja að einu…veit einhver um góðar tískuverslanir á netinu (fyrir utan tiska.is)
En allavegana það værii gaman að fá ykkar álit á þessu öllu saman og þið gætuð kannski bætt einhverju við….

Kveðja…