Ég er farin að halda að ég sé öðruvísi heldur en flestir allir kvenmenn (kem hérna með staðalmyndina af kvenmönnum), en aðallega út af fatakaupum. Jú oft langar mig í föt en finnst oft á tíðum gífurlega leiðinlegt að fara að kaupa föt kannski vegna þess að ég á svo erfitt með að finna föt á mig. Það er hitt vandamálið með mig er að ég finn aldrei neitt sem mér líkar, fötin í fatabúðum hér eru öll eins. Maður þræðir búðirnar hver á fætur annari og fötin eru öll eins og aldrei finn ég neitt.