Mér finnst alveg ótrúlegt hvað það eru margir sem að versla föt í Hagkaup…. og þora ekki að viðurkenna það ! Fyrir versló fór ég í Hagkaup með systur minni og vinkonu hennar (sem er 22 ára gelgja !) og vinkonan var að kaupa sér föt, þegar við komum út þá lét hún okkur LOFA því að við myndum ekki segja neinum hvar hún hefði keypt fötin og svo þegar við fórum á djammið á laugardagskvöldinu þá sagði hún öllum að hún hefði keypt þau í 17 í Reykjavík eða einhverri annarri flottri búð, þetta kalla ég sick !!! Ég persónulega kaupi flest fötin mín í Hagkaup og skammast mín ekkert fyrir það, það er ódýr og flott föt þar….
GO HAGKAUP ;)