*Ástæðan fyrir því að ég læt þetta hingað inn er sú að greinarnar fá ávallt meiri athygli en tilkynningarnar og þessi tilkynning þarf svo sannarlega alla ykkar athygli*

Sæl! Hér er smá tilkynning til ykkar.

Vantar efni..

Ég veit ekki hvort þið hafið tekið eftir því en áhugamálið hefur verið í smá lægð að undanförnu og er það alveg óásættanlegt. Það er ekkert framboð á könnunum, myndum, korkum eða greinum. Sjálfri þykir mér hálf hallhærislegt þegar ég, af öllum, er byrjuð að senda inn kannanir. Og því vona ég að þið takið ykkur til við þessi orð og sendið eitthvað inn. Hvað sem er! :)

Lífstíll

Mig langar endilega að fólk sendi inn greinar um uppáhalds fatamerkið sitt eða eitthvað annað merki sem það kannast við og hefur áhuga á að skrifa um. Ég bendi á Hollister Co. greinina sem dæmi. Alveg sama hvaða fatamerki það er!

Verslunarferðir

Það er aldrei eins mikil traffík í flugstöð Leifs Eríkssonar eins og á haustin og veturnar. Fólk hvaðan af á landinu flykkist til útlanda í verslunarferðir. Hvort sem það er London, París, Glasgow, Róm, Bandaríkin.. Ert þú að fara eitthvert? Hefur þú farið eitthvert? Sendu þá inn grein!:) Hvort sem það er um drauma verslunarferðina, tilvonandi verslunarferð, fyrrverandi verslunarferð. Hversu oft hef ég sagt þetta?: Hvað sem er!

Hönnun

Ég veit að það leynast margir upprennandi fatahönnuðir hér á meðal oss. Þeir láta samt lítið á sér bera og ég vil vekja athygli á því að allar umræður um hönnun eru meira en velkomnar í korkaflokknum fatnaður. Ég hvet líka þessar manneskjur að senda inn greinar, líkt og Fantasia gerði um daginn, og senda inn myndir af vekum sínum.

Fleira var það ekki í bili. Með von um góð viðbrögð og að allir taki sig á. :)

Stjórnandi