Sá hérna 2 greinar um uppáhalds föt svo ég ákvað að skjélla einu um mín hérna ;] Ég er með rosalegan venjulegan fatasmekk, en bolir eru í uppáhaldi hjá mér, þá sérstaklega bolir með einhverju fyndnu framan á :)

Fyrsta uppáhaldið mitt er græni bolurinn með Andrés Önd framan á, fullum og á honum stendur Donald Drunk og fyrir neðan Malt Whiskey :) finnst hann algjör snilld og hann er mikið notaður :)

Uppáhald númer 2 er svona Hummel grátt vesti sem ég var að festa kaup á. Finnst það rosa smart og á eftir að ganga mikið í því :)

Uppáhald númer 3 er mín henson hettupeysa, rauð og svört :) veit, er með rosa venjulegan fatasmekk :)

Uppáhald númer 4 eru næstum sjálflýsandi appelsínugulu Adidas buxurnar mínar. Þær eru bæði geðveikt flottar og svo líka rosa þægilegar :)

Uppáhald númer 5 er síðan svart, hnésítt pils, svolítið útvítt og rosa flott. Nota það ekkert mjög mikið enda er ég líka tiltölulega nýbúin að festa kaup á því/það eða e-ð :)

Síðasta uppáhald mitt eru svartir Converse skór á hælum :'D Finnst þeir algjör snilld :)

Síðan á ég fullt af bolum með einhverju fyndnu og flottu á :) líka einar hnésíðar svartar buxur sem eru miiiikið notaðar (A) en ég á svo mörg uppáhöld að það er varla hægt að nefna nokkur.

Allavega, babe63's OUT :)
can we leave the light on, boss ?