Það er eitt sem ég hef hugsað mikið um undanfarið. Þær stelpur sem hafa áhyggjur af of litlum brjóstum en eru ekki svo langt niðri að pæla í lýtaaðgerðir, hvað geta þær gert? Nú, það er alveg inni í myndinni að sætta sig bara við ástandið og líta á björtu hliðarnar. Hvað er svona slæmt við það að hafa lítil brjóst?

En svo er líka hægt að kaupa sér brjóstahaldara með púðum í og þar kemur spurningin. Taka strákar eftir því a) þegar stelpan er í enhverju utanyfir brjóstahaldaranum? b) þegar hún er komin úr að ofan?

Sem sagt myndu þeir verða fyrir vonbrigðum þegar hún er farin úr brjóstahaldaranum og þeir sjá hvernig stúlkan er vaxin í raun og veru?
Skiptir það þá kannski engu máli? Endilega svarið strákar :)