Jæja. Ég var að skoða ónefnda fólk síðu þarsem einn af blessuðum gothurunum var að tjá sig. Það var mikið um að henni, já henni langaði að drepa sig o.s.frv. að líf hennar væri tilgangslaust og eitthvað fleira leiðinlegt. Hinsvegar var á síðunni fullt af einhverju drasli um Korn, Slipknot, Murderdolls og svoleiðis. Ég hef rekist á fleiri svona fólk síður þarsem er skrifað um hvað líf þeirra sé ömurlegt og á virðist líka vera mikið um korn, slipknot og svona… Er þetta einhver tilviljun að þessir gotharar séu þunglyndir alltaf? Eða finna þeir sem eru þunglyndir einhverja huggun í Korn, Slipknot og öllu sem tilheyrir þessu goth dóti? Eða er þetta bara kall á athygli? Mér finnst ekkert kúl þegar fólk vill deyja. Mér finnst ekkert kúl að vilja vera þunglyndur..Það er ekki mikil virðing í því fyrir fólk sem fremur sjálfsmorð eða þunglynda. Ef þau eru hinsvegar þunglynd þá er ég ekkert að dæma þau. Þá er þetta alveg réttlætanlegt með þessar síður. Ég er heldur ekki að segja að allir gotharar séu svona ég veit um marga mjög hressa en þetta var bara eitthvað svona að brjótast í mér (segir maður það ekki annars?) Hvað finnst hugurum?
They may take our lives but they'll never take our freedom!