Finnst ykkur ekki skrítið hvað tískan það sem af er þessu ári hefur spannað yfir marga áratugi og tískustrauma??
Það er hálf ótrúlegt!!
Það er nottla allt þetta pönk-dót, gaddabelti og ólar o.s.fr. Stígvél í kúrekastíl og kúrekahattar, munstruð föt í hippastíl, glimmer frá diskótímabilinu og margt fleira!!
Hvernig verður þetta þá í haust?? Verður farið aftur til 18 hundruð og eitthvað af því að öll tískan frá síðustu öld er öll búin?? Kannski kemur samt eitthvað gjörsamlega nýtt. Það verður gaman að sjá. Hafið þið einhverjar hugmyndir um hvað verður í tísku í haust og vetur??