Sumar 2004

Já sumarið er að fara að koma og þá er gott að fara að versla sumarfötin og ekki er verra að fylgja tískunni.
Tískan í sumar verður doldið lík tískunni sem var í fyrrasumar þ.e. ríkjandi litir.
Gulur og gulleitir litir verða mjög mikið í sumar eins og sjá má í flestum búðargluggum sem eru komnir með sumarsendinguna.
Stutt pils og mini pils verða pottþétt mjög vinsæl.
Kvartbuxur verða mikið ríkjandi í sumar og eru margar tegundir af svoleiðis buxum komnar í búðirnar.
Opnir bolir hvort sem þeir eru opnir að framan eða í bak eru rosalega góðir í þessu “sumarveðri” og það er flott að vera í kvartbuxum við.
Sandalar með svona pinna á milli tánna eða sundsandalar eins og ég kalla þá verða og eru mjög þæginlegir.
Netaderhúfurnar eru æði og verður mikið um þær í sumar þær eru til í mörgum flottum litum og eiga margar stelpur svona húfur. Þið sem eigið ekki svona derhúfur getið keypt svona húfur á MJÖG góðu verði í Blesd She.
Einnig er mjög flott að vera með der eins og tennisfólkið er alltaf með. Þau eru mjög létt og hlífa andlitinu þegar það er komið með næga sól í sig.
Ekki má gleyma sólgleraugunum! Þau eru nauðsynlegust ef þú ætlar að fylgja tískunni! Hægt er að fá sólgleraugu út um allt svo sem bensínstöðum, bónus, apótekum og gleraugnarbúðum.

EN ég vil samt minna á það að ÞIÐ ráðið hverju þið klæðist! Það getur enginn sagt ykkur hvernig þið eigið að klæðast!