Mig langar aðeins að nefna ástarhöld hérna á þessu ágæta áhugamáli ;) Þannig er mál með vexti að í sumar var ég að tala við félaga minn á sjónum um það að við þyrftum nú að fara losa okkar við bjórvömbina. Þá sagði hann: “Nei blessaður vertu, þó svo að við kallarnir viljum losna við þetta þá finnst kellingunum þetta bara kynferðislega kósý!”

Ég verð að segja eftir að hafa velt þessu svoldið fyrir mér að ég er alveg sammála honum, það er ekkert eins yndislegt og smá bumba á stelpu til að strjúka ;)

En auðvitað má þetta ekki fara úr böndunum! Eða eins og vinkona mín orðaði það, þá er það rómó að kveikja á kertum, en ef þú kveikir í húsinu þínu, er það ekkert rómó lengur ;)

Þannig að svona til að ljúka þessu þá segi ég við ykkur stelpurnar sem eruð að eltast við allt þetta megrunarbrjálæði, hættið því ;) Það er bara betra að hafa aðeins meir til að elska.
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _