Ég var að lesa greinin eftir Vinny “Ýmind stelpna” og las álit Hoddix og mér fannst þetta álit meika mikið sense. Ég veit að stelpurnar sem voru að svara álitinu voru alls ekkert að reyna að rakka niður horaðar stelpur og ég er alls ekkert aðeins að tala um þessa grein.

Það eru margir svo grunnhyggir að kalla “mjúkar” stelpur viðbjóðslegar og margar stelpur hafa lent í einelti vegna þess, þannig að ég held að þessar “mjúku” stelpur flestar (ég er ekki að tala um allar) séu ekki endilegar gramar út í þær horuðu heldur kannski bara að reyna að tjá sig um að feitt er fallegt og það hefur óvart hljómað þannig eins og þær séu að rakka niður þær horuðu en það eru líka sumar stelpur sem eru í afneitun að þær séu svona þykkar að þær kalla mjóu stelpurnar jafnvel horrenglur og þannig.

Systir mín er módel og hún var að módela í kringlunni og ég var að horfa á og þrjár stelpur sem voru alls ekki feitar bara svona pínu pínu þibbnar svona stærðir 12-14 voru e-ð að hlæja og segja ó Guð hvað erum við að gera að horfa á þessar horrenglur og svo voru þær bara að gera grín af þeim hvað þær voru vel vaxnar!

Ég veit vel að flestar “mjúku” stelpurnar hérna eiga eftir að vera ósammála þessu en ég er bara að segja að ég geri mér grein fyrir því að þetta átti kannski alls ekkert að vera árás á mjóu stelpurnar en hljómaði dáldið þannig.