Tískan í dag! Hvað má og hvað ekki?:
Hérna er smá innsýni yfir það sem er flott og hvað ekki, eða hvað má og hvað ekki.
Eins og tildæmis í dag er í tísku að vera í þröngum gallabuxum að ofan og aðeins útvítt neðst.
Síðan er það alltaf sporty tískan sem er ennþá í tísku! Nátturulegu efnin eru alltaf inn þ.e. base litað og blátt. Það sem að þykir hallærislegt í dag er þegar að eitthvað er með pallíettum eða blúndum! Þá segja krakkar oft að þetta sé t.d. hitt’í fyrra. Stelpur t.d. mega ekki vera í strákalegum-fötum, þ.e. of útvíðum buxum (nema þær séu inn), of víðum fötum og þ.e.h.
Það sem er í tísku hjá stelpum í dag er t.d. gallbuxur, flegnir bolir og peysuföt.
Skilyrðin hjá strákunum í fataklæðnaði er að þröng föt eru ekki flott, strákar í dag fíla ekki þröngar buxur eða peysur. Það er sem að er mest inn hjá strákum er eflaust þetta sama
“sporty look”. Og oft á böllum er kannski bara gallabuxur skyrta og bindi, sem er mest inn núna.



Litirnir:
Það er alltaf mikilvægt að vera í fötum sem að passa saman, eins og t.d blátt og svart, rautt og hvítt. En eins og brúnt og gult passar ekki alveg saman. Hérna er smá innsýni yfir hvernig er hægt að klæða sig eftir litum!
Ef þú ert mikið fyrir tísku er auðvelt fyrir þig að aðlagast nýjum litum. Ef þú ert mikið fyrir að ganga í sterkum litum, getur þú verið viss um að þú munt skera þig úr fjöldanum sem hyllir ljósu litina.
Sérstaklega er gott að kaupa fínni föt í svörtum lit þar sem hann er, og verður alltaf klassískur.
Ljósi liturinn verður í öllum litbrigðum, frá ljósum lit og til meira dekkri lita. Ljósi liturinn hefur þann eiginlega að hann passar við við flest. Ljóst passar líka mjög vel við svart.



Hvað er inn og hvenær?:
Þegar að einhver fræg leikkona eða söngkona byrjar með eitthvað nýtt look þá er það mjög oft að það “look” verður í tísku í einhvern tíma. En til þess að það gangi verður það að vera smart,
oft eru það frægustu leikkonurnar eða söngkonurnar sem að margir apa eftir.
Eins og t.d. Julia Roberts, hún hefur alltaf þótt ganga í flottum fötum, eða Nicole Kidman. Síðan eru það mjög oft þegar að söngkonurnar eru í meira fríkaðari fötum, eins og Kylie Minoge.
En það þíðkast líka hjá strákum að stelpur ráðleggja strákum hvað á að kaupa, kannski eitthvað sem þær hafa séð í tískublöðum. Síðan er það alltaf David Beckham sem að er alltaf inn, eins og margir hafa tekið eftir er til ákveðin klipping sem að kallast “Beckham klippingin” sem að breytist alltaf eftir því hvernig Beckham klippir sig!

Ég vil bara taka það fram að þetta er ritgerð sem að ég gerði fyrir löngu og margt af þessu er ekkert rétt í dag!

Síðan vil ég líka koma því á framfæri að tískan í dag gæti verið nú aðeins smekklegri…. Ég tók eftir því á grein hérna sem að kallast Porn Star? Að ég er mjög sammála þessu, þetta er rosalega asnalegt að litlar stelpur séu að ganga í mini-pilsum og flengnum bolum með kynlífssetningum á. Þetta er nú frekar hleykslandi! En ég er nú samt ekki að segja að allar yngri stelpur gangi í svona fötum, bara svona að koma því á framfæri…
Ég var einmitt í Kringlunni um daginn og sá þarna eikkerja 9 eða 10 ára stelpu sem að var í bol sem að stóð 69 á, og þetta toppaði allt, síðan var hún í buxum sem að voru alveg að detta niður um hana, og það sást vel að þetta átti að vera svoleiðis!!!!